<$BlogRSDUrl$>

Hér tjáir verðandikennarinn sig um vistina við Hamrahlíð

Monday, November 17, 2003

Þessari síðu fer nú alveg að ljúka, rétt eins og æfingakennslunni. Ég er nánast alveg búin með æfingakennsluna mína og er tiltöluega sátt. Ég hugsa að ég geti bent á 300 hluti sem mér hefiði þótt mega betur fara en þegar upp er staðið held ég að ég sé búin að læra helmingi meira um kennslu á þessari litlu æfingakennslu en ég gæti lært af 300 bókum svo ég ætla alls ekki að gagnrýna. Eftir áramótin förum við, held ég, aftur í æfingakennslu. Ég hlakka mikið til og vona að það sem miður fór í þessari verði lagfært þá.

Friday, November 07, 2003

Þá er ég búin að setja inn linka á þessa síðu. Ætti ég að setja inn fleiri? Ætti ég að setja inn comment? Hmmmmm ég veit ekki, að mörgu að hyggja.
Nú hefur verið svo ósköp mikið að gera í æfingakennslunni að ég hef bara ekki mátt vera að því að blogga um það. Í gær kenndi ég tvær kennslustundi, eina í Hávamálum og eina í bragfræði. Seinni partin vorum við síðan með einstaklingskennsluna og mér fannst það bara ganga nokkuð vel. Ég tók að mér að kenna strák sem er ekki innfæddur íslendingur bragfræði. Gulla bað mig sérstaklega um það því bekkurinn er að byrja í bragfræðinni og hún hafði áhyggjur af því að þetta myndi reynast honum dálítið erfitt. Það reyndist ekki svo mjög rétt hjá Gullu. Strákurinn er alveg bráðskarpur (eins og Gulla reyndar vissi mæta vel) og meðtók hrynjandina, ljóðstafina og rímið á mettíma. Það var mjög skemmtilegt að kenna honum og ég held að hann hafi líka haft mjög gaman að kennslustundinni enda hrósaði ég honum svo mikið að hann virtist, á tímabili, lyftast upp úr stólnum sínum.

Í dag kenndi ég eina kennslustund. Fyrrihlutinn fór í stutt próf í setningafræði og seinni hlutinn í kynningu á bragfræði. Það gekk ágætlega en það leyndi sér ekki að það var kominn dálítill föstudagur í börnin. Ég hélt svo sem alveg uppi aga en það voru samt dálítil læti í þeim. Þau voru ekki heldur alveg að meðtaka bragfræðina eins hratt og þau hefðu átt að gera.

Nú er ég að mestu leyti búin með æfingakennsluna mína. Kannski fæ ég að kenna einn tíma í viðbót og svo fæ ég einhverja tíma í aðstoð. Ég hlakka til að fá meiri æfingakennslu eftir áramót. Vonandi verður það betur skipulagt og betur nýtt.

Tuesday, November 04, 2003

Arna, stalla mín í MH, hefur mátt glíma við skæða flensu upp á síðkastið og því hefur einstaklingskennslunni verið frestað æ ofan í æ. Það er kannski ágætt því að í sjálfu sér er ég ekki alveg nógu vel undirbúin. Ég á að kenna bragfræði, sem ég á svo að kenna í ísl 103 á fimmtudag eða föstudag (eða bæði). Ég var að hugsa um að poppa bragfræðina dálítið upp og skoða kannski nokkra dægurlagatexta. Verst Hvað þeir eru mikill leirburður upp til hópa. Kannski ég líti á Naglbítana, dóttur minni 6 ára finnst þeir æðislegir og mér líka.
Láttu mig vera og
farðu svo burt
þarft ekki að svara það
var aldrei spurt!

Mjög sérstök hrynjandi svo ekki sé meira sagt.

Thursday, October 30, 2003

Á morgun á ég að standa skil á einstaklingskennslu (kenna einum nemanda) í bragfræði. Best að snúa sér að því að búa til einhverja kennsluáætlun og námsefni.
Þá er komið að því að blogga pínulítið um skólann . Í dag er í raun góður dagur til að hefja blogg um skólann því að í dag var lengsti dagurinn minn í kennslu. Guðlaug, leiðsögukennarinn minn, hafði sett mér fyrir að kenna tvær kennslustundir í ISL 103. Annars vegar átti ég að kenna notkun beinna og óbeinna tilvitnana og tilvísana í ritgerðasmíð og hins vegar sjá um stafsetningarupplestur. Ég hafði undirbúið mig stórvel fyrir kennsluna í beinum og ritgerðasmíðinni. Bjó til stórglæsilega power point sýningu fyrir nemendur og útlistaði ansi vel hvernig maður ber sig að við ritgerðasmíð. Ég hafði reyndar undirbúið mig aðeins of vel því ekki var gert ráð fyrir alveg jafn nákvæmri heimildavinnu á fyrsta ári í menntaskóla og í háskóla en lengi býr að fyrstu gerð og ég held að nemendurnir hafi bara haft gott af því að læra hvernig á að gera þetta rétt. Guðlaug var reyndar að mörgu leyti alveg sammála því þó henni þætti óþarfi að eyða svona miklum tíma í það. Að sýningunni lokinni unnu nemendurnir í ritgerðinni sinni í einskonar „workshop“ og við gengum á milli og aðstoðuðum þá. Ég fékk aðra tilraun til að spreyta mig á sömu power point sýningu og renndi ég mér þá mun hraðar í gegnum hana. Ég var ekki alveg viss um að nemendurnir hefðu náð innihaldinu jafn vel og fyrri hópurinn en þeir eiga allir Handbók um ritun og frágang og geta þar leitað sér frekari upplýsinga. Það er auðvitað óþarfi að kjaft mata þá á öllu, hjálp til sjálfsjálpar er oft betri.

Stafsetningarupplesturinn gekk mæta vel. Ég er þess fullviss að margir eru mér hæfari þegar kemur að stafsetningarkennslu en upplestur á ágætlega við mig. Ég hef auðvitað lagt fyrir hundrað svona próf, það hjálpar, auk þess sem röddin mín vinnur með mér (sagði Guðlaug). Ég er bæði afar skýrmælt og svo hefur mér aldrei legið sérstaklega lágt rómur. Alveg satt, spyrjið bara mömmu....
Útlitið orðið skárra og búið að buna fyrirsögnum í gegnum netþýðanda, nú er þetta allt að koma.
Vonandi er þetta skárra!
Svo er þetta ógeðslega ljótt template líka, verð að breyta því.
Ég þarf nú greinilega að finna einhverja lausn á því að hér vantar alla íslenska stafi. Púff þetta er ljótt.
Er þetta mitt nýja blogg nú virkt?

This page is powered by Blogger. Isn't yours?